Hvernig bæti ég við pósthólfi í Outlook?

Hvernig bæti ég við pósthólfi í Outlook?

Outlook býður uppá að hafa fleirri en eitt pósthólf aðgengilegt í einu.
Eftirfarandi leiðbeiningar aðstoða þig við að bæta við öðru pósthólfi.

1. Opnaði Outlook póstforritið.
2. Efst uppi í vinstra horni gluggans er ýtt á File. 

         

Þá opnast eftirfarandi valmynd.

         

3. Ýttu á "Add Account" Takkann.
Nú opnast nýr gluggi og outlook byrjar að leita að reikningum tengdir tölvunni og/eða þeim notanda sem er tengdur við outlook.
Þeir reikningar/pósthólf sem outlook finnur birtast í smellivalmynd við miðjan gluggann.

               

4. Ýttu á "Connect".
Athugið að stundum þarf innskráningu með lykilorði til að skrá pósthólfið. Þá er lykilorð slegið inn og ýtt á connect.
Oftast þarf þess ekki og outlook biður þig um að endurræsa póstforritinu til að virkja breytingar.
Ef reikningur sem tengja á við outlook finnst ekki er hægt að smella á "Advanced Options" og haka við "Let me set up my account manually"
      4.1  Þá er póstfangið slegið, t.d "notandi@fyrirtaeki.is" í strenginn undir "Email Adress" (sjá mynd fyrir ofan), og svo ýtt á connect.
      4.2 Næst er valin viðeigandi póstþjónusta er póstfangið sem slegið er inn er tengt við. Það getur verið Microsoft, Gmail, Hotmail osfrv.

              

      4.3 Oftast er hægt að finna viðeigandi stillingar hjá hýsingaraðila póstfangsins í vefviðmóti þess póstþjóns.
             Ef um IMAP uppsettningu er að ræða sjá leiðbeiningar fyrir IMAP uppsetningu í þínu póstforriti með því að smella hér
             Þar eru ýtarlegar upplýsingar og vandaðar leiðbeiningar um uppsettnigu á pósthólfi með IMAP stillingum.

Athugaðu að þú getur alltaf haft samband við okkur í gegnum hjalp@techsupport.is ef þú lendir í vandræðum við uppsettningu á pósthólfi.
    • Related Articles

    • Hvernig get ég séð sameiginlegt pósthólf (shared mailbox) í vefpóstinum?

      Ef þú ert með aðgang að sameiginlega pósthólfi, t.d. example@example.com eða info@example.com þarftu að framkvæma eftirfarandi til að sjá pósthólfið í vefpóstinum. Athugaðu að ef þú setur upp OWA appið í símanum þínum verður pósthólfið í framhaldinu ...
    • Hvernig endurset ég lykilorðið mitt í Office 365

      Til að endursetja lykilorð þarf að fara í gegnum einfalt ferli: Farðu á office.com Skráðu þig inn með því að smella á Sign inn (uppi í hægra horninu) Ef þú þarft að velja um Vinnu eða Einkareikning, veldu Vinnureikning (Work or School account).  ...
    • Hvaða stillingar nota ég fyrir póstforritið mitt?

      Hér eru póststillingar sem ganga í flest póstforrit. Athugaðu að sum póstforrit leyfa þér að stila póstinn með því einu að fá póstfang og lykilorð en önnur þurfa ítarlegri stillingar. POP eða IMAP? Best er að nota IMAP, það skilur póstinn eftir á ...
    • Ég man ekki lykilorðið mitt. Get ég endurstillt það á eigin spýtur?

      Í flestum tilfellum getur þú endursett þitt eigið lykilorð í Office 365. Það fer þó eftir uppsetningu á þínu kerfi. Fylgdu þessari slóð: https://passwordreset.microsoftonline.com/ Þar eru leiðbeiningar sem þú fylgir. Hafðu samband við okkur í ...